Arnór Steinar Einarsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri steypustöðvar MVA og hefur þegar hafið störf.
Hann hefur víðtæka reynslu og þekkingu innan sem utan MVA sem mun nýtast vel við rekstur og uppbyggingu stöðvarinnar.

Næstu vikur fara í undirbúning fyrir annasamasta tíma ársins í steypunni en fjölmörg verkefni bíða okkar.

Bjóðum við Arnór velkominn í nýtt hlutverk innan MVA.